Aðalfundarboð 2021
Aðalfundur Hestamannafélagsins Hrings verður haldinn í Menningarhúsinu Bergi
þriðjudaginn 23. mars kl 18:00.
Dagskrá aðalfundar:
- Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara
- Inntaka nýrra félaga/úrsagnir
- Skýrsla stjórnar
- Afgreiðsla reikninga
- Lagabreytingar ( engar lagabreytingar )
- Kosningar
- 3 í aðalstjórn
- Endurskoðendur
- Önnur mál
Ath. að samkvæmt reglum félagsins eru þeir sem verða 17 ára á árinu fullgildir félagar og hafa atkvæðarétt á fundinum.
Veitingar verða í boði á fundinum.
Með bestu kveðju og von um að sjá sem flesta.
Stjórn Hrings
Sævaldur gefur kost á áframhaldandi setu í stjórn en Þorsteinn og Brynhildur gefa ekki kost á sér áfram í stjórn. Núverandi varamenn Hjörleifur og Þórir gefa kost á sér sem aðalmenn í stjórn