Þak á reiðhöllinni

Ágætu félagsmenn

Nú er allt að fara á fullt varðandi vinnu á þakinu í reiðhöllinni hjá okkur. Búið er að panta efni og vonir standa til að það verði jafnvel komið hingað í vikulokin. Þá þurfum við að grípa gæsina þegar veður leyfir og hjálpast að við að skipta gamla þakinu út og setja nýtt á. Við hvetjum alla sem hjálpað geta til, hvort sem er uppi á þaki og einnig þurfum við fólk til að sjá um allt umstang í kringum þessa vinnu ásamt því að hella upp á kaffi og sjá um eitthvert snarl handa fólkinu. Ef við hjálpumst að verður þetta ekki eins mikil vinna fyrir hvern og einn. Þeir sem geta hjálpað til mega gjarnan vera í sambandi við stjórnina. Vonandi verður reiðhöllin betri eftir þessa vinnu en fyrir og betri fyrir okkur að nota í vetur.

Stjórnin